14.02.2012 :
Bolur DagsinsKlerkarnir og pretikararnir gefa ekkert eftir og leggja sitt lóð á vogarskálarnar í því að fækka í þjóðkirkjunni. Bolurinn veltir því fyrir sér hvar kærleikurinn er og umburðarlyndið. Og barnatrúin, er það bara eitthvað fyrir ómálga einstaklinga? Takk, þetta er að verða gott. Betel talsmaðurinn og aðrir skoðanabræður hans um samkynhneigð, sem bjóða sig nú fram til biskups ýta bolnum að eyðublaðinu
Skráning utan trúfélaga. Það er greinilega ekki páss fyrir liti þarna, bara svart/hvítt.

Tags: vantrú, samtökin 78, litaður kross
20.01.2012 :
Bolur DagsinsRammíslenskur matur og drykkur í boði fyrir húsbændur þessa lands og væntingar um allt mögulegt rísa hátt.

Tags: bóndadagur, brennivín, pungar
17.01.2012 :
Bolur DagsinsÞetta er nýsköpun í lagi. Nú geta Samtök Iðnaðarins komið báðum upphafsstöfum sínum á saltstaukana og sparað þannig í auglýsingum og félagsmenn notað mismuninn til að kaupa sér salt í grautinn.

11.01.2012 :
Bolur DagsinsÞeirra verður sárt saknað. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem minnast þeirra er bent á Velferðarráðuneytið. RIP (Rest in Peace)

Tags: PIP, brjóstaaðgerðir, púðar
03.10.2011 :
Bolur DagsinsÞað er ekki seinna vænna en að kasta jólakveðju á liðið, enda langt komið inn í október. Verst er að vera svona seint á ferðinni, því hætta er á því að jólakveðjan drukkni í Frostrósa- og Jólagesta-Bjögga-tónleika-auglýsingaherferðum. Það er ferlegt að lenda í því.

Tags: gleðileg jól, kaupmenn
24.01.2011 :
Bolur DagsinsHvað er í gangi? Er allur vindur úr Byr?

Tags: byr, sparisjóður
14.01.2011 :
Bolur DagsinsÞau eru ýmist lang- eða þverröndótt bankamannafötin og nú fær Sigurjón bankastjóri fyrrverandi, nýjan galla og frítt að borða til 25. janúar. Landinn borgar eins og fyrri daginn, en nú með ánægju.

13.01.2011 :
Bolur DagsinsÉg dustaði rykið af þessum í tilefni dagsins og viti menn, hann er eins og nýr því bensínlíterinn hefur aldrei hærri á Íslandi – 213 kr. Til hamingu með það og olíufélögin bjóða TVEGGJA KRÓNA AFSLÁTT, er það ekki núll komma eitthvað prósent?. Bolurinn var teiknaður 27. ágúst 2008 rétt fyrir hrun en þá var líterinn að fara í 100 kr. ef ég man rétt og allt varð vitlaust.

20.5.2010 - 20.5.2011
Sýning á verkefninu BORÐ eftir grafísku hönnuðina, Bergþóru Huld Birgisdóttur, Björn Jónsson, Finn Malmquist, Rán Flygenring og Örn Smára Gíslason.
Sýning er samvinnuverkefni
Listasafns Íslands,
veitingastaðarins Marengs og hönnunarteymisins
Hunangs. BORÐIN eru til sýnis og notkunar á veitingastaðnum Marengs.

Tags: Hunang, hönnun,
Á Marengs, veitingasölunni á Listasafni Íslands eru nokkur borð eftir nokkra hönnuði að tilstuðlan Hunangs. Þetta er mitt borð, það mætti kalla sannleiksboð eða hreinskilnisborð. Það er gott á tímum þegar krafan er að hafa allt uppi á borðinu. Bara setja 1 kr. í raufina og tala hreint út.

Bara setja 1 kr. í raufina og tala hreint út.


Tags: Hunang, hönnun,