bolur
dagsins
og fleira
© Örn Smári Gíslason hafðu samband

Trúin í regnbogans litum?

Klerkarnir og pretikararnir gefa ekkert eftir og leggja sitt lóð á vogarskálarnar í því að fækka í þjóðkirkjunni. Bolurinn veltir því fyrir sér hvar kærleikurinn er og umburðarlyndið. Og barnatrúin, er það bara eitthvað fyrir ómálga einstaklinga? Takk, þetta er að verða gott. Betel talsmaðurinn og aðrir skoðanabræður hans um samkynhneigð, sem bjóða sig nú fram til biskups ýta bolnum að eyðublaðinu Skráning utan trúfélaga. Það er greinilega ekki páss fyrir liti þarna, bara svart/hvítt.

140212_Klerkar-