bolur
dagsins
og fleira
© Örn Smári Gíslason hafðu samband

STÓRA BRJÓSTAGJAFAMÁLIÐ

Ólafur Ragnar og hin fullkomna óvissa um framboð hans til forseta 5. kjörtímabilið fellur í skuggann af stóra brjóstagjafamálinu því 40 (fjörutíu) konur hyggjast mótmæla framkomu þjóns við móður sem var að gefa barni sínu brjóst. Þær ætla að mæta á Cafe París, sýna fulla samstöðu og gefa brjóst þó svo um misskilnig hafi verið að ræða. Hvað segja börnin um að vera dregin inn í mótmæli?



270212_STORA_BRJOSTAGJAGAMALID
0 Comments

Trúin í regnbogans litum?

Klerkarnir og pretikararnir gefa ekkert eftir og leggja sitt lóð á vogarskálarnar í því að fækka í þjóðkirkjunni. Bolurinn veltir því fyrir sér hvar kærleikurinn er og umburðarlyndið. Og barnatrúin, er það bara eitthvað fyrir ómálga einstaklinga? Takk, þetta er að verða gott. Betel talsmaðurinn og aðrir skoðanabræður hans um samkynhneigð, sem bjóða sig nú fram til biskups ýta bolnum að eyðublaðinu Skráning utan trúfélaga. Það er greinilega ekki páss fyrir liti þarna, bara svart/hvítt.

140212_Klerkar-
0 Comments

Bóndadagur

Rammíslenskur matur og drykkur í boði fyrir húsbændur þessa lands og væntingar um allt mögulegt rísa hátt.

200112-Bóndadagur
0 Comments

Salt í grautinn

Þetta er nýsköpun í lagi. Nú geta Samtök Iðnaðarins komið báðum upphafsstöfum sínum á saltstaukana og sparað þannig í auglýsingum og félagsmenn notað mismuninn til að kaupa sér salt í grautinn.

120117-Salt-í-grautinn
0 Comments

Brjóstumkennanlegt

Þeirra verður sárt saknað. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem minnast þeirra er bent á Velferðarráðuneytið. RIP (Rest in Peace)

110112_bolurinn RIP

0 Comments