14.02.2012
Klerkarnir og pretikararnir gefa ekkert eftir og leggja sitt lóð á vogarskálarnar í því að fækka í þjóðkirkjunni. Bolurinn veltir því fyrir sér hvar kærleikurinn er og umburðarlyndið. Og barnatrúin, er það bara eitthvað fyrir ómálga einstaklinga? Takk, þetta er að verða gott. Betel talsmaðurinn og aðrir skoðanabræður hans um samkynhneigð, sem bjóða sig nú fram til biskups ýta bolnum að eyðublaðinu
Skráning utan trúfélaga. Það er greinilega ekki páss fyrir liti þarna, bara svart/hvítt.

Tags: vantrú, samtökin 78, litaður kross
20.01.2012
Rammíslenskur matur og drykkur í boði fyrir húsbændur þessa lands og væntingar um allt mögulegt rísa hátt.

Tags: bóndadagur, brennivín, pungar
17.01.2012
Þetta er nýsköpun í lagi. Nú geta Samtök Iðnaðarins komið báðum upphafsstöfum sínum á saltstaukana og sparað þannig í auglýsingum og félagsmenn notað mismuninn til að kaupa sér salt í grautinn.

11.01.2012
Þeirra verður sárt saknað. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem minnast þeirra er bent á Velferðarráðuneytið. RIP (Rest in Peace)

Tags: PIP, brjóstaaðgerðir, púðar
03.10.2011
Það er ekki seinna vænna en að kasta jólakveðju á liðið, enda langt komið inn í október. Verst er að vera svona seint á ferðinni, því hætta er á því að jólakveðjan drukkni í Frostrósa- og Jólagesta-Bjögga-tónleika-auglýsingaherferðum. Það er ferlegt að lenda í því.

Tags: gleðileg jól, kaupmenn
24.01.2011
Hvað er í gangi? Er allur vindur úr Byr?

Tags: byr, sparisjóður
14.01.2011
Þau eru ýmist lang- eða þverröndótt bankamannafötin og nú fær Sigurjón bankastjóri fyrrverandi, nýjan galla og frítt að borða til 25. janúar. Landinn borgar eins og fyrri daginn, en nú með ánægju.

13.01.2011
Ég dustaði rykið af þessum í tilefni dagsins og viti menn, hann er eins og nýr því bensínlíterinn hefur aldrei hærri á Íslandi – 213 kr. Til hamingu með það og olíufélögin bjóða TVEGGJA KRÓNA AFSLÁTT, er það ekki núll komma eitthvað prósent?. Bolurinn var teiknaður 27. ágúst 2008 rétt fyrir hrun en þá var líterinn að fara í 100 kr. ef ég man rétt og allt varð vitlaust.

16.04.2010
Þegar útrásarvíkingarnir hafa allir flutt lögheimili sitt frá Íslandi er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að þeir verði meðhöndlaðir eins og aðrir í skipulagðri glæpastarfsemi.
Stoppa þá strax í Leifsstöð ef þeir reyna að koma til landsins með almennu flugi, siga á þá öllum miðlum og senda svo í burtu með næstu vél.
